Fotbolti.net
20.03.15 - 10:35
Magnús Már Einarsson

Ingólfur Kristjánsson til Volda (Staðfest)

Ingólfur í leik með Grundarfirði 2013.

Ingólfur í leik með Grundarfirði 2013.

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Ingólfur Örn Kristjánsson, framherij Völsungs, hefur gengið til liðs við Volda í norsku 3. deildinni.

Ingólfur var markahæstur með Völsungi á síðasta tímabili en hann skoraði tíu mörk þegar liðið féll úr 2. deildinni.

Sumarið 2012 skoraði Ingólfur 19 mörk í 3. deildinni með Grundarfirði og árið eftir skoraði hann sjö mörk með sama liði.

Þessi 24 ára gamli leikmaður spilaði sem markvörður í yngri flokkunum en fór síðan að spila frammi í meistaraflokki.
Ingólfur æfði með Þór í vetur en nú er ljóst að hann mun spila í Noregi í sumar.

Hann fór til Volda fyrir tilstuðlan Péturs Heiðars Kristjánssonar en eftirspurnin af íslenskum leikmönnum er alltaf að aukast í Noregi. Þeir sem hafa áhuga á reyna fyrir sér í neðri deildunum í Noregi geta haft samband við [email protected]
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.