Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 20. mars 2020 12:42
Magnús Már Einarsson
KSÍ með verkefnið áfram Ísland - Myndbönd fyrir iðkendur
Ari Freyr Skúlason kemur með fyrstu æfinguna.
Ari Freyr Skúlason kemur með fyrstu æfinguna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hefur ákveðið að keyra í gang verkefni sem kallast "Áfram Ísland!" og gengur út á að hvetja þjóðina og iðkendur til dáða, til að halda áfram að æfa daglega (með eða án bolta), þrátt fyrir þær takmarkanir sem eru tilkomnar vegna samkomubanns í tengslum við heimsfaraldur COVID-19.

Birt verða tvenns konar myndbönd. Annars vegar myndbönd úr Tækniskóla KSÍ með einföldum æfingum sem krakkar geta gert utan skipulagðra æfinga hjá sínum félögum - ein og sér eða í litlum hópum með vinum sínum og vinkonum. Hins vegar myndbönd með hvatningu frá landsliðsfólki til iðkenda um að halda áfram að hreyfa sig og æfa með reglulegum hætti, og til að viðhalda öllu því sem til þarf og vera tilbúin í slaginn þegar æfingar og keppni hefjast að nýju.

#ÁframÍsland

Myndböndin verða birt daglega á Instagram og Facebook síðum KSÍ, en einnig verður hægt að finna þau öll á Youtube síðu KSÍ.

Landsliðsmaðurinn Ari Freyr Skúlason er með fyrstu æfinguna og hana má sjá hér að neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner