Fotbolti.net
20.03.23 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Hafði ekkert með það að gera sem við höfum gert undanfarnar vikur"

„Hafði ekkert með það að gera sem við höfum gert undanfarnar vikur"
Canon

Mynd: EPA

Julian Nagelsmann stjóri Bayern Munchen var alls ekki sáttur eftir tap liðsins gegn Bayer Leverkusen í gær.

Liðið tapaði 2-1 og missti því toppsætið til Dortmund sem valtaði yfir Köln 6-1 á laugardaginn.

„Hamingjuóskir til Xabi (Alonso) og Leverkusen fyrir verðskuldaðan sigur. Við vorum lakari aðilinn í 80 mínútur, við áttum 10 góðar mínútur í lokin. Eins og við spiluðum með og án bolta hafði ekkert með það að gera sem við höfum gert undanfarnar vikur. Við spiluðum mörgum löngum boltum," sagði Nagelsmann.

Þetta var aðeins þriðja tap liðsins í deildinni en annað tapið í síðustu fimm leikjum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.