Juventus varð fyrir áfalli í gær þegar Federico Chiesa þurfti að fara af velli vegna meiðsla í sigri liðsins á Inter.
Chiesa hefur átt í miklum erfiðleikum með að festa sig í sessi vegna meiðsla og það var talið að hann yrði eitthvað frá eftir að hafa meiðst í gær.
Þessi 25 ára gamli Ítali byrjaði á bekknum í gær en kom inná á 66. mínútu en þurfti að fara af velli á 83. mínútu. Hann var skoðaður í dag og niðurstöðurnar voru góðar.
„Prófin sem Federico Chiesa fór í dag eftir að hafa meiðst í gær sögðu að ekki um nein meiðsli er að ræða. Hann verður skoðaður nánar daglega," segir í yfirlýsingu frá félaginu.
Athugasemdir