Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
fimmtudagur 14. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 18. september
fimmtudagur 14. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
miðvikudagur 13. september
þriðjudagur 12. september
Undankeppni EM U21 landsliða
mánudagur 11. september
Undankeppni EM
sunnudagur 10. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
þriðjudagur 19. mars
CHAMPIONS LEAGUE: Playoffs - Women
Ajax W - Chelsea W - 17:45
SL Benfica W - Lyon - 20:00
þri 20.apr 2021 11:15 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 12. sæti: Leiknir

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að nýliðar Leiknis muni enda í 12. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Leiknir endar í neðsta sæti ef spáin rætist.

Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknis.
Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknis.
Mynd/Haukur Gunnarsson
Hollenski markvörðurinn Guy Smit.
Hollenski markvörðurinn Guy Smit.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Kólumbíumaðurinn Andrés 'Manga' Escobar.
Kólumbíumaðurinn Andrés 'Manga' Escobar.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Brynjar Hlöðversson er lykilmaður.
Brynjar Hlöðversson er lykilmaður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tvíburarnir Dagur og Máni Austmann.
Tvíburarnir Dagur og Máni Austmann.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sænski miðjumaðurinn Emil Berger.
Sænski miðjumaðurinn Emil Berger.
Mynd/Haukur Gunnarsson
Varnarmaðurinn Gyrðir Hrafn Guðbrandsson.
Varnarmaðurinn Gyrðir Hrafn Guðbrandsson.
Mynd/Haukur Gunnarsson
Daníel Finns Matthíasson.
Daníel Finns Matthíasson.
Mynd/Haukur Gunnarsson
Mynd/Haukur Gunnarsson
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. Leiknir 14 stig

Um liðið: Leiknismenn spila í annað skipti í sögunni í efstu deild í sumar. Leiknir spilaði fyrst í Pepsi-deildinni árið 2015 og er nú komið aftur á meðal þeirra bestu. Liðið komst upp úr Lengjudeildinni í fyrra þar sem að það spilaði hraðan og skemmtilegan sóknarleik. Leiknir skoraði 50 mörk í 20 leikjum en liðið hefur skemmtilega sóknarmenn innan sinna raða.



Þjálfari - Sigurður Heiðar Höskuldsson: Á sínu fyrsta heila tímabili sem aðalþjálfari stýrði Siggi liði Leiknis upp í efstu deild. Siggi var aðstoðarþjálfari en hann tók við Leikin snemma sumars árið 2019 þegar Stefán Gíslason hætti til að taka við Lommel í Belgíu. Hinn 35 ára gamli Siggi er yngsti þjálfarinn í Pepsi Max-deildinni í ár.

Styrkleikar: Liðið er vel skipulagt og leikmenn þekkja sín hlutverk vel. Hraðinn fram á við er mikill og með Sævar Atla í broddi fylkingar getur liðið skorað mörk. Hópurinn er nokkuð stór og jafn. Leiknismenn geta því auðveldlega gert breytingar á liði sínu á milli leikja.

Veikleikar: Vuk Oskar Dimitrijevic fór á kostum í Lengjudeildinni í fyrra áður en hann gekk í raðir FH. Það er mikið áfall fyrir Leikni að missa hann. Fáir leikmenn í leikmannahópi Leiknis hafa spilað áður í efstu deild. Leikstíllinn í fyrra var sókndjarfur og það gæti verið erfiðara í mun sterkari deild í ár.

Lykilmenn: Sævar Atli Magnússon og Brynjar Hlöðversson. Sævar Atli hefur verið lykilmaður í sóknarleik Leiknis og í vetur hefur hann gjörsamlega raðað inn mörkunum í undirbúningsmótunum. Breiðablik keypti Sævar á dögunum en fyrirliðinn leiðir Leikni áfram í sumar áður en hann flytur sig yfir í Smárann. Binni Hlö mætti aftur í Breiðholtið í fyrra eftir dvöl í Færeyjum. Reynslumesti leikmaður Leiknis en hann var í liðinu í efstu deild árið 2015. Þá spilaði Brynjar á miðjunni en í dag er hann í hjarta varnarinnar.

Fantabrögð mæla með í Draumaliðsdeild Eyjabita:
Eins og önnur lið sem er spáð neðarlega byrjar prógrammið ekki vel hjá Leiknismönnum. Spurningarmerkin eru mikil, hversu góður verður Sævar Atli? Hversu góður er Escobar? Þar til við fáum svörin spilum við þetta öruggt og kaupum Gyrði Hrafn í vörnina á 4,5, enda vita hlustendur Fantabragða hvað breiður leikmannahópur er mikilvægur!
Smelltu hér til að fara í Draumaliðsdeild Eyjabita

Hlaðvarpsþátturinn Ungstirnin mælir með: Daníel Finns Matthíasson. Öflugur miðjumaður fæddur 2000 sem er uppalinn í Breiðholtinu, spilaði sinn fyrsta leik í meistaraflokki þegar hann kom inn á í Borgunarbikarnum árið 2016 gegn FH. Daníel spilaði mikilvægt hlutverk í liði Leiknis á seinasta tímabili en hann spilaði 16 leiki í deild og bikar skoraði sex mörk og var með tvær stoðsendingar. Daníel er þekktur fyrir að vera með frábærar horn og aukaspyrnur og mun Daníel reynast Leiknismönnum mikilvægur í sumar.

Spurningarnar: Nær Leiknir að fylla skarðið sem Vuk skilur eftir sig? Hvernig koma sóknarmennirnir frá Suður-Ameríku út í Breiðholti? Mun reynsluleysi í efstu deild trufla Breiðhyltinga?

Völlurinn: Leiknismenn spila á grasi á Domusnovavellinum í Breiðholti. Völlurinn hefur oft verið nefndur Gettó ground hjá gárungunum. Stúka er við völlinn en þó er ekkert þak á henni.

„Skemmtilegt en krefjandi sumar"


Fyrirliðinn segir - Sævar Atli Magnússon
„Nei þessi spá kemur okkur þannig séð ekki á óvart. Ég er ekki búinn að vinna heimavinnuna, viðurkenni það, en nýliðarnir sem lenda í 2. sæti í Lengjudeildinni árið áður hafa líklega alltaf verið spáð falli ekki satt? Þetta er virkilega sterk deild og þetta verður skemmtilegt en aftur á móti krefjandi sumar. Við erum kannski ekki með mikla reynslu úr efstu deild en við erum klárlega með nógu mikil gæði til að gera góða hluti í sumar. Við ætlum okkur að gera eitthvað sem Leiknir hefur aldrei gert og það er að spila í deild þeirra bestu allavega tvö ár í röð. Við erum ógeðslega spenntir fyrir sumrinu og okkur hlakkar mikið til að fá öll stærstu lið landsins upp í Efra-Breiðholtið á Ghettó Ground."

Komnir
Andrés ‘Manga’ Escobar frá Kólumbíu
Emil Berger frá Dalkurd
Loftur Páll Eiríksson frá Þór
Octavio Páez frá Venesúela

Farnir
Vuk Oskar Dimitrijevic í FH

Fyrstu fimm leikir Leiknis:
1. maí Stjarnan - Leiknir
8. maí Leiknir - Breiðablik
12. maí KA - Leiknir
16. maí Leiknir - Fylkir
21. maí Valur - Leiknir

Sjá einnig:
Hin hliðin - Ósvald Jarl Traustason
Hin hliðin - Sólon Breki Leifsson

Leikmenn Leiknis:
1 - Guy Smit (m)
2 - Birgir Baldvinsson
3 - Ósvald Jarl Traustason
4 - Bjarki Aðalsteinsson
5 - Daði Bærings Halldórsson
6 - Ernir Bjarnason
7 - Máni Austmann
8 - Árni Elvar Árnason
9 - Sólon Breki Leifsson
10 - Sævar Atli Magnúson (f)
11 - Brynjar Hlöðversson
12 - Viktor Freyr Sigurðsson (m)
14 - Birkir Björnsson
15 - Andi Hoti
17 - Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
18 - Emil Berger
19 - Andrés Manga Escobar
20 - Loftur Páll Eiríksson
21 - Octavio Paez
23 - Dagur Austmann
24 - Daníel Finns Matthíasson
26 - Davíð Júlían Jónsson
27 - Dylan Chiazor
28 - Arnór Ingi Kristinsson
77 - Róbert Quental Árnason
80 - Shkelzen Veseli
88 - Ágúst Leó Björnsson

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Ingólfur Sigurðsson, Magnús Már Einarsson, Sverrir Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson
Athugasemdir
banner
banner
banner