Fotbolti.net
15.11.26 - 16:00
Brynjar Ingi Erluson

Hvetur Liverpool til að kaupa Araujo

Ronald Araujo hefur komið sterkur inn í lið Liverpool

Ronald Araujo hefur komið sterkur inn í lið Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Úrúgvæski varnarmaðurinn Ronald Araujo hefur heillað stuðningsmenn Liverpool upp úr skónum síðan hann kom til félagsins á láni frá Barcelona í sumar. Nú hvetur fyrrum leikmaður Liverpool félagið til að gera félagaskiptin varanleg.
Araujo var fyrirliði Barcelona áður en félagið ákvað að lána hann til Liverpool, en hann var ekki lengur í náðinni hjá Hansi Flick og átti erfitt með að vinna sér sæti í byrjunarliðinu.

Það voru ekki margir sem bjuggust við stórkostlegum hlutum frá Araujo, enda hafði hann misst mikið af trausti stuðningsmanna Barcelona eftir nokkur dýrkeypt mistök. Hann hefur hins vegar fundið sig heldur betur hjá Liverpool og er orðinn vinsæll meðal stuðningsmanna fyrir öflugan varnarleik og mikla ástríðu inni á vellinum.

Araujo hefur að mestu leikið í hægri bakverðinum hjá Liverpool, sem getur keypt hann frá Barcelona fyrir 47 milljónir punda. Dejan Lovren, fyrrum leikmaður félagsins, telur að Liverpool eigi ekki að láta það tækifæri fram hjá sér fara.

„Ég held að enska úrvalsdeildin henti Araujo betur en sú spænska. Hann hefur svo mikla líkamlega yfirburði og því hentar deildin honum fullkomlega.“

„Ég held að hann eigi bara eftir að verða betri og kannski getur hann samið um að vera þarna til frambúðar. Liverpool verður ekki eini valkosturinn hans í ensku úrvalsdeildinni, en félagið er nógu skynsamt til að skoða þann möguleika. Hann er líka enn frekar ungur, aðeins 27 ára, þannig að af hverju ekki að halda honum ef hann er að standa sig svona vel?“

„Við erum að tala um 47 milljónir punda, þannig að af hverju ekki? Undir venjulegum kringumstæðum myndi hann líklega kosta 80 milljónir punda. Af hverju ekki að kaupa hann á þessu verði og hjálpa honum að verða enn betri leikmaður? Hann er á fullkomnum aldri og á góð fimm eða sex ár eftir á hæsta stigi,“
sagði Lovren um Araujo.
Hvetur Liverpool til að kaupa Araujo
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.