Fotbolti.net
20.04.25 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ítalía: Flugskalli Ederson tryggði Atalanta stigin þrjú

Ítalía: Flugskalli Ederson tryggði Atalanta stigin þrjú
Canon

Mynd: EPA

Milan 0 - 1 Atalanta
0-1 Ederson ('62 )
Atalanta vann sterkan sigur á útivelli gegn AC Milan í ítölsku deildinni í kvöld.

Rafael Leao fékk gullið tækifæri til að koma Milan yfir þegar hann slapp í gegn eftir hálftíma leik. Raoul Bellanova gerði hins vegar gríðarlega vel og náði boltanum af honum á síðustu stundu.

Í kjölfarið var Leao dæmdur rangstæður en það vakti athygli að hann var ekki kominn yfir miðju þegar sendingin kom.

Luca Jovic komst í gott færi undir lok fyrri hálfleiks en negldi boltanum framhjá.

Atalanta náði forystunni þegar Ederson skoraði með flugskalla eftir frábæra sókn. Mateo Retegui var nálægt því að bæta við marki en Strahinja Pavlovic tókst að trufla hann og boltinn fór framhjá.

Á lokamínútu venjulegs leiktíma fékk Ademola Lookman tækifæri til að bæta við marki en Mike Maignan sá við honum. Það kom ekki að sök því Atalanta vann leikinn og er 3. sæti með 64 stig. Milan er í 9. sæti með 51 stig, sex stigum á eftir Roma sem er í 6. sæti.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter7+1219
2Lazio7+1019
3Roma8+1318
4Como8+717
5Milan7+715
6Frosinone7+413
7Torino8+213
8Cagliari8-313
9Napoli8+311
10Juventus7+111
11Atalanta7-19
12Lecce7-39
13Bologna8-28
14Sassuolo8-48
15Monza8-37
16Udinese7-74
17Genoa7-84
18Fiorentina7-94
19Parma7-94
20Venezia7-103
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.