Fotbolti.net
24.10.26 - 17:18
Fótbolti.net

Rúnar Már eftir lokaleikinn: Ferðalagið stendur upp úr

Auglýsing
Rúnar Már eftir lokaleikinn: Ferðalagið stendur upp úr
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Már Sigurjónsson, leikmaður ÍA, lék sinn síðasta leik á ferlinum í dag þegar ÍA og Keflavík gerðu 4-4 jafntefli í lokaumferð Bestu deildarinnar.

Hann fékk heiðursskiptingu í seinni hálfleik.
Rúnar Már leggur skóna á hilluna eftir tímabilið (Staðfest)
TENGT EFNI

Rúnar Már leggur skóna á hilluna eftir tímabilið (Staðfest)

Lestu um leikinn: ÍA 4 - 4 Keflavík
„Gaman að sjá mitt fólk í stúkunni og þetta var bara fallegt," segir Rúnar Már en Tindastólslagið var spilað í Akraneshöllinni honum til heiðurs.

„Fyrst og fremst er ég Tindastólsmaður og byrjaði að spila fótbolta þar þriggja, fjögurra ára gamall þannig að Það var bara fallegt hjá ÍA að spila það lag."

Hvað stendur upp úr á ferlinum?

„Bara ferðalagið. Ég hef prófað mismunandi lönd, kynnst mismunandi fólki og kúltúr, bara fólkið sem maður kynntist á leiðinni. Ég held að það standi svolítið upp úr, Ég fer núnaí frí og ætla að njóta þess að vera ekki íþróttamaður. Það er svona númer eitt, tvö og þrjú. Hitt kemur bara í ljós seinna."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.