Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 20. maí 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hefði áhuga á því að fá De Rossi til Boca Juniors
Mynd: Getty Images
Ítalski miðjumaðurinn Daniele De Rossi mun yfirgefa Roma eftir tímabilið.

De Rossi, sem er 35 ára, vildi vera áfram hjá Roma en forseti félagsins vildi ekki semja við hann. De Rossi hefur leikið með Roma allan sinn feril en fær nýtt verkefni í sumar.

Sjá einnig:
Stuðningsmenn Roma mótmæla brotthvarfi De Rossi

Argentíska félagið Boca Juniors hefur áhuga á því að semja við De Rossi. Nicolas Burdisso, yfirmaður íþróttamála hjá Boca, þekkir De Rossi vel eftir að hafa spilað með honum hjá Roma.

„Ég held að framtíð hans (De Rossi) gæti verið hjá okkur," sagði Burdisso við Fox Sports í Argentínu.

„Núna er þetta kannski meiri von en raunveruleiki, en Daniele er vinur. Ég tala við hann reglulega og fyrir leikmann eins og hann eru dyrnar alltaf opnar."
Athugasemdir
banner
banner
banner