Fotbolti.net
20.05.26 - 22:24
Stefán Marteinn Ólafsson

Ingibjörg Lúcía bjargaði stigi: Ekkert viss um að margir komi hérna og sæki stig

Auglýsing
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir

Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Stjarnan sótti gott stig suður með sjó í kvöld þegar þær heimsóttu nýliða Grindavík/Njarðvík í 5. umferð Bestu deild kvenna í kvöld.

Nýliðarnir virtust vera að sigla sigrinum heim en í uppbótartíma jafnaði Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir, sem fagnaði 28 ára afmæli sínu í dag, metinn og þar við sat. 

Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 1 - 1 Stjarnan

„Við kannski byrjuðum leikinn ekkert rosalega vel" sagði Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir leikmaður Stjörnunnar eftir jafnteflið í kvöld.

„Mér fannst við vinna okkur vel inn í leikinn. Kannski viðbrigði fyrir okkur að koma á grasið en við vissum alltaf að þetta væri að fara vera erfiður leikur" 

„Þær eru fastar fyrir og eru bara með betri liðum í deildinni. Ég er ekkert viss um að margir komi hérna og sæki stig þó svo að það hafi verið markmiðið okkar að sækja þrjú" 

Stjarnan bankaði hressilega á dyrnar undir lok leiks og má vel færa rök fyrir því að jöfnunarmarkið hafi legið í loftinu en Ingibjörg Lúcía skoraði jöfnunarmarkið í uppbótartíma.

„Það var mjög gott. Við höfum verið hinumegin og fengið jöfnunarmark á okkur þannig það er fínt að vera hinumegin núna" 

„Við tökum alveg yfir seinni hálfleikinn og við hefðum alveg geta verið löngu búnar að skora en það var miög sætt að sjá hann inni" sagði Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir. 

Nánar er rætt við Ingibjörgu Lúcíu í spilaranum hér fyrir ofan.


Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH12+2529
2Breiðablik12+2227
3Stjarnan12+521
4ÍBV12-120
5Grindavík/Njarðvík12-715
6Þróttur R.12-513
7Fram12-1213
8Þór/KA12-512
9Valur12-1010
10Víkingur R.12-1210
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.