Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Baðst afsökunar fyrir að hafa farið til Barcelona
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: MLS
Antoine Griezmann kvaddi stuðningsmenn Atlético Madrid eftir síðasta heimaleik tímabilsins sem lauk með 1-0 sigri gegn Girona um helgina.

Kveðja Griezmann var tilfinningaþrungin þar sem hann felldi tár og baðst afsökunar fyrir að hafa skipt yfir til Barcelona sumarið 2019.

Börsungar keyptu franska sóknarmanninn fyrir 120 milljónir evra í mjög dramatískum félagaskiptum. Riftunarákvæði Griezmann hljóðaði upp á 200 milljónir evra en lækkaði niður í 120 milljónir 1. júlí 2019.

Barcelona greiddi upp riftunarákvæðið 19. júlí en stjórnendur Atlético færðu rök fyrir því að Griezmann hafi verið búinn að samþykkja félagaskipti til Barcelona talsvert fyrir þann tíma og því hafi Börsungar átt að greiða 200 milljónir fyrir. Atlético fór með málið til stjórnar La Liga sem ákvað að leyfa félagaskiptunum að standa.

„Ég vona að þið getið fyrirgefið mér. Ég var ungur og gerði mistök með að skipta yfir til Barcelona. Ég skildi ekki hversu miklar ástar ég naut hérna og þegar ég áttaði mig á mistökunum þá gerði ég allt í mínu valdi til að koma aftur," sagði Griezmann í kveðju sinni til stuðningsmanna á Metropolitano leikvanginum.

„Mér tókst hvorki að vinna deildina né Meistaradeildina hérna en það sem skiptir mig máli er ástin sem ég fékk frá ykkur."

Hann var hjá Barcelona í tvö ár en stórveldið neyddist til að selja hann þegar fjárhagur félagsins tók svakalega dýfu í miðjum COVID faraldri. Griezmann var á ofurlaunum hjá Barca svo félagið lánaði hann aftur til Atlético til að forðast gjaldþrot og sáu Madrídingar um að borga launapakkann hans á meðan. Hann var að lokum keyptur aftur til Atlético fyrir svo lítið sem 25 milljónir evra.

„Ég veit að margir ykkar hafa þegar fyrirgefið mér en ég veit líka að sumir hafa ekki ennþá gert það og þess vegna biðst ég afsökunar aftur."

Griezmann nýtti tækifærið til að þakka Diego Simeone þjálfara, liðsfélögum sínum, starfsteyminu og fjölskyldu sinni fyrir góðar stundir, áður en hann gekk af Metropolitano vellinum í síðasta sinn ásamt fjórum börnum sínum.

Griezmann varð heimsmeistari með Frakklandi 2018 og lagði landsliðsskóna á hilluna eftir síðasta Evrópumót. Hann er þriðji leikjahæstur í sögu landsliðsins með 137 spilaða leiki ásamt Olivier Giroud, einungis Hugo Lloris og Lilian Thuram léku fleiri landsleiki.

35 ára Griezmann er búinn að semja við Orlando City SC í bandarísku MLS deildinni þar sem hann mun leika listir sínar næstu árin.

   18.05.2026 06:00
Lagði upp hundraðasta markið í síðasta heimaleiknum

Slapp
banner