Jafnt á Hlíðarenda - Þróttur hafði betur í Reykjavíkurslag
Þremur síðustu leikjum kvöldsins er lokið í Bestu deild kvenna þar sem nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur tóku á móti Stjörnunni.
Lily Farkas náði forystunni fyrir heimakonur snemma leiks eftir sókn upp vinstri kantinn og klafs í teignum. Boltinn endaði hjá Lily sem þakkaði fyrir sig með marki.
Grindavík/Njarðvík komst í færi til að tvöfalda forystuna en Bridgette Skiba varði frábærlega og dó leikurinn út í kjölfarið. Staðan var 1-0 í leikhlé og komst Úlfa Dís Úlfarsdóttir í gegn í upphafi síðari hálfleiks en Lauren Kellett, markvörður G/N, lokaði vel á hana.
Seinni hálfleikurinn var nokkuð jafn þar sem heimakonur fengu þó betri tækifæri. Bæði lið fengu færi til að bæta marki við en tókst ekki fyrr en í uppbótartíma, þegar Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir skoraði með skoti utan vítateigs í kjölfar hornspyrnu. Lokatölur urðu því 1-1 og eru nýliðar G/N með 7 stig eftir 5 umferðir, tveimur stigum meira heldur en Stjarnan.
Grindavík/Njarðvík 1 - 1 Stjarnan
1-0 Lily Anna Farkas ('10)
1-1 Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('91)
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 1 - 1 Stjarnan
Valur og Fram áttust þá við á Hlíðarenda og var fyrri hálfleikurinn fjörugur. Liðin skiptust á að sækja en tókst ekki að skora svo staðan var markalaus í leikhlé.
Síðari hálfleikurinn var bragðdaufari en gestirnir í liði Fram fengu bestu færin. Ekki tókst að nýta þau svo lokatölur urðu 0-0.
Valur er aðeins með fjögur stig og er þetta fyrsta stigið sem Fram nælir sér í eftir fimm umferðir af deildartímabilinu.
Valur 0 - 0 Fram
Lestu um leikinn: Valur 0 - 0 Fram
Að lokum hafði Þróttur betur í spennandi Reykjavíkurslag gegn Víkingi þar sem Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir var í aðalhlutverki.
Sigríður átti marktilraun sem hafnaði í stönginni áður en hún skoraði laglegt opnunarmark með góðu skoti eftir sendingu frá Unni Dóru Bergsdóttur.
Jasmín Erla Ingadóttir jafnaði skömmu síðar eftir óbeina aukaspyrnu. Boltinn endaði hjá Jasmínu eftir skot í vegginn og náði hún að koma honum á markið. Mollee Swift virtist vera með boltann en missti hann eiginlega inn og staðan orðin jöfn.
Heimakonur gerðu tvöfalda skiptingu í hálfleik en það skilaði sér ekki því gestirnir skiptu um gír. Sigríður Theódóra kom þeim yfir á nýjan leik með góðu marki eftir sendingu frá Mist Funadóttur og róaðist leikurinn nokkuð niður í kjölfarið.
Þróttur hélt eins marks forystu þar til á lokakaflanum þegar Brynja Rán Knudsen tvöfaldaði hana eftir að Elizabeth Grace markverði mistókst að kýla boltann nógu langt úr vítateignum.
Víkingar áttu engin svör og setti Þórdís Nanna Ágústsdóttir fjórða og síðasta mark gestanna í uppbótartíma. Víkingar voru nýbúnir að bjarga á marklínu áður en Þórdís Nanna stal boltanum hátt uppi á vellinum og skoraði ein gegn markmanni.
Lokatölur 1-4 og er Þróttur í fjórða sæti með 9 stig eftir 5 umferðir. Víkingur er með 6 stig.
Víkingur R. 1 - 4 Þróttur R.
0-1 Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir ('30)
1-1 Jasmín Erla Ingadóttir ('35)
1-2 Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir ('54)
1-3 Brynja Rán Knudsen ('80)
1-4 Þórdís Nanna Ágústsdóttir ('94)
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 4 Þróttur R.
Besta kvenna
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|


