Fotbolti.net
20.05.26 - 19:57
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deild kvenna: Sigurganga ÍBV endaði í Hafnarfirði

Besta deild kvenna: Sigurganga ÍBV endaði í Hafnarfirði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
FH 3 - 0 ÍBV
1-0 Birna Kristín Björnsdóttir ('11)
2-0 Ída Marín Hermannsdóttir ('71, víti)
3-0 Helena Maree Errington ('83)
Nýliðar ÍBV unnu óvænt fjóra fyrstu leikina á deildartímabilinu í Bestu deild kvenna og heimsóttu FH í fyrsta leik fimmtu umferðar.

Eyjakonur byrjuðu af miklum krafti en lentu undir á elleftu mínútu þegar Birna Kristín Björnsdóttir fylgdi eftir með marki eftir glæsilega sókn. Nia Raisa þrumaði boltanum í stöngina eftir frábært spil upp völlinn og fylgdi Birna Kristín eftir af stuttu færi.

ÍBV reyndi að bregðast við en mikil meiðslavandræði settu svip sinn á hálfleikinn þegar Allison Lowrey fór fyrst meidd af velli áður en Embla Harðardóttir þurfti líka að fara útaf.

Staðan var því 1-0 í hálfleik og skiptust liðin á að sækja í seinni hálfleik en sköpuðu sér ekki sérlega góð færi fyrr en vítaspyrna var dæmd. Ingibjörg Magnúsdóttir féll til jarðar í vítateig gestanna og benti Bergrós Lilja Unudóttir dómari á vítapunktinn.

Ída Marín Hermannsdóttir steig á punktinn og skoraði á 71. mínútu og tólf mínútum síðar innsiglaði Helena Errington endanlega sigur heimakvenna. Lokatölur 3-0.

ÍBV situr í öðru sæti eftir þetta tap með 12 stig eftir 5 umferðir, tveimur stigum fyrir ofan FH.
Besta deild kvenna: Sigurganga ÍBV endaði í Hafnarfirði
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.