Þau risastóru tíðindi bárust í gær að Southampton var vísað úr Championship-umspilinu vegna njósnamálsins. Félagið hefur áfrýjað niðurstöðunni og verður áfrýjunin tekin fyrir í dag.
Aðili úr þjálfarateymi félagsins njósnaði um æfingu Middlesbrough áður en liðin mættust í undanúrslitum Championship umspilsins. Southampton vann svo einvígið naumlega og átti að mæta Hull í úrslitaleik um sæti í úrvalsdeildinni.
En nú er það Middlesbrough sem fær sæti í úrslitaleiknum sem er oft kallaður verðmætasti leikur fótboltans. Verðmætið er talið um 200 milljónir punda.

Middlesbrough hefur lýst yfir ánægju með niðurstöðuna enda gaf félagið það út að eina rétta niðurstaðan væri að reka Southampton úr keppninni. Paul Robinson, sérfræðingur BBC, fagnar því að refsingin hafi verið þetta þung.
„Ég er ánægður með þennan dóm. Þetta er eins og þegar þú ert óþekkur krakki og viðurkennir þrjú eða fjögur tilfelli. Þá hefur þú klárlega gert sjö eða átta. Mikilvægast er að vernda heiðarleika leiksins," segir Robinson. „Þeir hafa fengið hörðustu refsinguna og eiga hana skilið."
Eftir rannsókn í málinu viðurkenndi Southampton að hafa einnig njósnað um æfingar hjá Oxford United og Ipswich Town fyrr á tímabilinu. Liðið mun byrja næsta tímabil í Championship-deildinni með fjögur stig í mínus.
Jo Tessem, fyrrum leikmaður Southampton, segir að sitt gamla félag geti lítið sagt eftir þennan dóm.
„Ég er orðlaus. Það eru vonbrigði að félagið hafi seilst þetta langt, þetta er sorgardagur fyrir það. Það eru reglur sem þarf að fylgja, reglur sem þarf að refsa fyrir þegar þeim er ekki framfylgt. Þegar þú viðurkennir að hafa gert þetta þrisvar þá getur þú lítið sagt," segir Tessem.