Gylfi: Ætla óska eftir því að Ingibjörg Lúcía fari að skora flottari mörk en þetta

Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nýliðarnir í Grindavík/Njarðvík tóku á móti Stjörnunni á JBÓ vellinum í Njarðvík í kvöld þegar 5. umferð Bestu deild kvenna fór fram.
Eftir að hafa náð forystunni snemma leiks og allt leit út fyrir sigur heimakvenna jafnaði Stjarnan metinn í uppbótartíma og þar við sat.
„Það er svekkjandi og niðurstaðan er ekki góð" sagði Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík eftir jafnteflið í kvöld.
„Við vinnum ekki leikinn og við vildum vinna leikinn. Það er alveg svekkjandi en ég hef sagt það svo sem áður að við erum meira að einblína á okkar frammistöður og ég var mjög ánægður með mjög margt í dag"
„Ég er sáttur heilt yfir eins leiðinlegt og það er fyrir hvaða manneskju sem er að fá á sig jöfnunarmark í uppbótartíma. Ég fæ þær tilfinningar líka eins og aðrir"
Stjarnan jafnaði leikinn í uppbótartíma og skaut Gylfi létt á markaskorara leiksins.
„Þær ná stjórn á leiknum þá [síðustu 20 mínútur] og voru að dæla boltum inn í teig og reyna að jafna leikinn og það tókst með ógeðslega ljótu jöfnunarmarki"
„Annað ljóta markið hennar Ingibjargar á tímabilinu. Þetta var jafnvel ljótara en markið hennar á móti Víking. Ég ætla að óska eftir því að Ingibjörg Lúcía fari að skora flottari mörk en þetta. Þetta var ekki fallega gert af vinkonu minni" Sagði Gylfi léttur.
Grindavík/Njarðvík hafa byrjað tímabilið virkilega vel og komið skemmtilega á óvart.
„Ég er bara sáttur með byrjunina. Við erum að gefa öllum liðum leik, hver einasti leikur í þessari deild hefur verið hörku leikur sama hvort við höfum unnið hann eða tapað"
„Mér finnst bara við Grindavík/Njarðvík að við séum komnar á þann stað að geta veitt liðum eins og FH, Þrótti, Val og Stjörnunni núna, Þór/KA. Þetta eru risa lið sem við erum búnar að spila á móti"
„Það er erfitt að spila á móti okkur og við erum bara að gefa þeim leiki og erum samkeppnishæf í þessari deild og mér finnst það bara mjög gott, við erum á góðum stað og mér finnst liðið líta vel út og eru að spila vel"
Nánar er rætt við Gylfa Tryggvason í spilaranum hér fyrir ofan.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | FH | 12 | +25 | 29 |
| 2 | Breiðablik | 12 | +22 | 27 |
| 3 | Stjarnan | 12 | +5 | 21 |
| 4 | ÍBV | 12 | -1 | 20 |
| 5 | Grindavík/Njarðvík | 12 | -7 | 15 |
| 6 | Þróttur R. | 12 | -5 | 13 |
| 7 | Fram | 12 | -12 | 13 |
| 8 | Þór/KA | 12 | -5 | 12 |
| 9 | Valur | 12 | -10 | 10 |
| 10 | Víkingur R. | 12 | -12 | 10 |



