Micah Richards, fyrrum varnarmaður Manchester City og enska landsliðsins, telur öruggt að Pep Guardiola muni yfirgefa Man City í sumar eftir fréttaflutning enskra fjölmiðla.
Allir stærstu og virtustu miðlar enska fótboltaheimsins hafa greint frá yfirvofandi brottför Guardiola í sumar, þó að Spánverjinn vinsæli eigi eitt ár eftir af samningi.
„Maður getur séð á því hvernig hann ber sig að hann er að fara frá félaginu. Maður sér það á því hvernig hann svarar spurningum. Ef hann vildi vera áfram þá myndi hann segja: 'Ég verð áfram' en hann er ekki þar," sagði Richards, sem starfar sem fótboltasérfræðingur í dag, í útsendingu Sky Sports á dögunum.
„Þetta er sorgardagur fyrir ensku úrvalsdeildina og Man City útaf því að Pep hefur verið stórkostlegur fyrir enskan fótbolta. Hann er án nokkurs vafa besti þjálfari sinnar kynslóðar og ég segi þetta útaf því hvernig fótbolta hann spilar.
„Það eru til ýmsar leiðir til að vinna fótboltaleiki. Mikel Arteta tókst að vinna úrvalsdeildina með að leggja mikla áherslu á sterkan varnarleik en Pep hefur alltaf spilað skemmtilegan fótbolta og komið inn með ferskar nýjungar.
„Á tíu árum hjá City hefur Pep breytt því hvernig við horfum á bakverði og falskar níur. Hann notaði John Stones á miðjunni í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Hann er ótrúlegur þjálfari sem elskar að spila fótbolta á réttan hátt og þetta er ást sem smitar frá sér."
18.05.2026 20:07
Segja að Guardiola hætti eftir tímabilið




