Fotbolti.net
20.06.16 - 14:00
Ingólfur Sigurðsson

Ched Evans til Chesterfield eftir fangelsisvist (Staðfest)

Evans á ferðinni með Sheffield United.

Evans á ferðinni með Sheffield United.

Canon

Mynd: Getty Images

Ched Evans hefur skrifað undir eins árs samning við Chesterfield í League One, C-deild Englands. Áætlað er að hann mæti á sínar fyrstu æfingar með liðinu þegar undirbúningstímabilið hefst þann 1. júlí.
Evans spilaði síðast fyrir fjórum árum en þá var hann dæmdur fyrir nauðgun á 19 ára gamalli stúlku. Á þeim tíma var hann leikmaður Sheffield United og landsliðsmaður Wales.

Evans, sem hefur neitað sök frá upphafi málsins, sat inni í tvö og hálft ár áður en hann honum var sleppt úr haldi í október 2014. Ný sönnunargögn komu í ljós í fyrra og nú er búið að ógilda dóminn. Ógilding dómsins þýðir einfaldlega að nú þarf að dæma aftur í málinu, sem verður gert í október.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.