20.06.16 - 17:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrirliði Bournemouth búinn að semja við Aston Villa (Staðfest)

Elphick er mættur til Villa

Mynd: Getty Images

Elphick er mættur til Villa

Mynd: Getty Images
Roberto Di Matteo er búinn að gera sín fyrstu kaup sem stjóri Aston Villa. Hann nældi í fyrirliða Bournemouth, Tommy Elphick.
Aston Villa borgar Bournemouth 3 milljónir punda fyrir varnarmanninn, en hann samdi til þriggja ára.
Elphick vann gríðarlega mikið sem fyrirliði Bournemouth, en enginn annar fyrirliði í sögu félagsins hefur náð jafn miklum árangri og hann. Hann var fyrirliði liðsins sem fór upp úr Championship-deildinni árið 2015.
Hann spilaði þó aðeins 14 leiki með liðinu á fyrsta tímabili liðsins í ensku úrvalsdeildinni vegna meiðsla.
Hann mun nú halda til Aston Villa til þess að hjálpa liðinu að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina. Liðið féll eftir skelfilegt tímabil í ensku úrvalsdeildinni.