Völsungur var með öruggan sigur á Kára í 2. deild karla í gærkvöldi. Þá er KV enn ósigrað.
Kári heimsótti Völsung á Vodafonevöllinn á Húsavík í gærkvöldi. Leiknum lauk með 5-2 sigri heimamanna.
Santiago Abalo skoraði tvö fyrstu mörkin fyrir heimamenn áður en Sæþór Olgeirsson bætti tveimur mörkum við. Á 64. mínútu fengu gestirnir vítaspyrnu og Andri Júlíusson skoraði og klóraði í bakkann fyrir gestina.
Marinó Hilmar Ásgeirsson skoraði annað mark gestanna áður en Sæþór nelgdi síðasta naglann í kistu Kára með þriðja marki sínu og fimmta marki Völsungs manna. 5-2 lokatölur.
KV heimsótti KF á Ólafsfjörð en Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson kom gestunum yfir og Ingólfur Sigurðsson bætti öðru markinu við úr vítaspyrnu undir lok leiksins og þar við sat, 2-0 sigur gestanna og eru þeir því enn taplausir í deildinni.
Völsungur 5-2 Kári
1-0 Santiago Feuillassier Abalo ('8)
2-0 Santiago Feuillassier Abalo ('22)
3-0 Sæþór Olgeirsson ('36)
4-0 Sæþór Olgeirsson ('56)
4-1 Andri Júlíusson ('64, víti)
4-2 Marinó Hilmar Ásgeirsson ('72)
5-2 Sæþór Olgeirsson ('90)
KF 0-2 KV
0-1 Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson ('56)
0-2 Ingólfur Sigurðsson ('71, víti)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir