Roberto Mancini líkti Wales við Stoke á blaðamannafundi fyrir leik Ítalíu og Wales á EM í dag.
„Það er erfitt að brjóta þá á bak aftur, þeir eru mjög öflugir." sagði Mancini.
Gareth Bale leikmaður Wales var spurður út í þennan samanburð og sagði:
„Ég vissi ekki að Stoke væru svona góðir" og brosti.
Bale var síðan spurður út í tilfinninguna hans fyrir leik dagsins.
„Það væri frábært að vinna Ítalíu. Það gefur manni alltaf sjálfstraust að vinna, fá sigur hugarfarið. Sigurinn gegn Tyrklandi gefur okkur meira sjálfstraust inn í þennan leik. Við myndum þá vinna riðilinn og ég held að við fáum þá aðeins auðveldari leik í næstu umferð."
Brilliant from Gareth Bale 😂🏴
— Sky Sports Football (@SkyFootball) June 20, 2021
Athugasemdir