Pochettino: Þurfum á Pulisic að halda ef við ætlum að vinna mótið

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bandaríkin tryggðu sér sæti í 32-liða úrslitum á HM í kvöld með 2-0 sigri á Ástralíu. Liðið vann Paragvæ 4-1 í fyrstu umferð. Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, var að vonum sáttur í leikslok.
„Þetta var frábær leikur. Mjög góður fyrri hálfleikur, við áttum leikinn gegn mjög erfiðu liði. Ég sagði eftir dráttinn í desember að þetta væri erfiður dráttur en við spiluðum frábærlega," sagði Pochettino.
Christian Pulisic, lykilmaður liðsins, var fjarverandi í kvöld vegna meiðsla en Pochettino vonast til að hann verði klár í slaginn fyrir síðasta leikinn í riðlinum gegn Tyrklandi.
„Pulisic er mikilvægur leikmaður fyrir okkur en við erum lið og það var ómögulegt fyrir hann að spila í dag. Við viljum fá hann aftur fyrir næsta leik. Við þurfum á öllum leikmönnunum að halda ef við ætlum að vinna mótið," sagði Pochettino.
„Pulisic er auðvitað einn besti leikmaður heims. Ég vona að hann nái að jafna sig og geti hjálpað okkur eins fljótt og hægt er."

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!