Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 20. júlí 2021 18:21
Brynjar Ingi Erluson
Asmir Begovic til Everton (Staðfest)
Mynd: Heimasíða Everton
Bosníski markvörðurinn Asmir Begovic gerði í dag eins árs samning við enska úrvalsdeildarfélagið Everton. Hann kemur frá Bournemouth.

Everton fær Begovic inn sem varamarkvörð fyrir enska landsliðsmarkvörðinn Jordan Pickford.

Begovic er 34 ára gamall og hokinn af reynslu. Markvörðinn hefur síðustu fjögur ár verið á mála hjá Bournemouth og átti eitt ár eftir af samningnum. Hann gerir eins árs samning með möguleika á öðru ári.

Hann var á láni hjá AC Milan á síðustu leiktíð þar sem hann var Gianluigi Donnarumma til halds og trausts.

Begovic hefur einnig spilað fyrir Portsmouth, Stoke og Chelsea á sínum ferli.

Markvörðurinn reyndi á þá 63 landsleiki fyrir Bosníu og Herzegóvínu.

Þetta er annar leikmaðurinn sem Rafael Benitez fær til Everton en félagið samdi einnig við Andros Townsend í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner