Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 20. júlí 2021 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Liverpool að selja tvo á samtals 17 milljónir punda
Marko Grujic.
Marko Grujic.
Mynd: Getty Images
Liverpool er að selja tvo leikmenn fyrir samtals 17 milljónir punda. BBC segir frá þessu.

Leikmennirnir sem hér um ræðir eru serbneski miðjumaðurinn Marko Grujic og nígeríski framherjinn Taiwo Awoniyi.

Grujic, sem er 25 ára gamall, var á síðasta láni á láni hjá Porto. Portúgalska félagið er núna að ganga frá kaupum á honum fyrir 10,5 milljónir punda.

Awoniyi, sem er 25 ára, er einnig að fara aftur til félags sem hann var á láni hjá á síðustu leiktíð. Hann spilaði með Union Berlín í Þýskalandi sem er núna að kaupa hann á 6,5 milljónir punda.

Grujic spilaði 16 leiki með aðalliði Liverpool en Awoniyi hefur aldrei fengið að spreyta sig með aðalliðinu í keppnisleik.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner