Fotbolti.net
20.07.21 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Tottenham og Sevilla að skipta á leikmönnum

Lamela er á leið til Sevilla.

Lamela er á leið til Sevilla.

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham á Englandi og Sevilla á Spáni eru að skipta á leikmönnum. Erik Lamela er að fara til Sevilla og Bryan Gil er að fara til Tottenham.
Það er ítalski fjölmiðlamaðurinn Fabrizio Romano, sem er mjög áreiðanlegur, sem greinir frá þessu.

Romano segir að það styttist í að samkomulag náist um þessi félagaskipti. Sevilla mun fá 25 milljónir evra sem hluta af félagaskiptunum.

Lamela er 29 ára gamall kantmaður og hefur verið hjá Tottenham síðustu átta árin. Gil er tvítugur kantmaður sem á þrjá A-landsleiki að baki fyrir Spán. Hann var á láni hjá Eibar á síðustu leiktíð en núna virðist leiðin liggja til Englands fyrir hann.

Tottenham hafnaði í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Sevilla endaði í fjórða sæti spænsku úrvalsdeildarinnar.
Bryan Gil.

Bryan Gil.

Canon

Mynd: NordicPhotos

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.