20.08.15 - 19:14
Ívan Guðjón Baldursson
Alex Sandro kominn til Juventus (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Alex Sandro, vinstri bakvörður brasilíska landsliðsins, er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Juventus.
Sandro er 24 ára gamall, hefur verið lykilmaður í liði Porto undanfarin tímabil og á sex A-landsleiki að baki fyrir brasilíska landsliðið.
Sandro er 24 ára gamall, hefur verið lykilmaður í liði Porto undanfarin tímabil og á sex A-landsleiki að baki fyrir brasilíska landsliðið.
Juventus greiðir 18.6 milljónir punda fyrir leikmanninn og á hann að taka við af Patrice Evra. Bakverðirnir eiga eftir að eiga í spennandi baráttu um byrjunarliðssæti á tímabilinu.
Sandro viðheldur gæðunum í vörninni sem stóð sig gríðarlega vel á síðasta tímabili þegar félagið vann bæði ítölsku deildina, bikarinn og komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Sandro viðheldur gæðunum í vörninni sem stóð sig gríðarlega vel á síðasta tímabili þegar félagið vann bæði ítölsku deildina, bikarinn og komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Heimild: BBC
