Fotbolti.net
20.08.15 - 07:30
Arnar Geir Halldórsson

Antonio Rudiger lánaður til Roma (Staðfest)

Antonio Rudiger mun leika í treyju númer 2

Antonio Rudiger mun leika í treyju númer 2

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýski varnarmaðurinn Antonio Rudiger er genginn til liðs við ítalska stórliðið Roma.
Rudiger kemur til Roma á eins árs lánssamning frá Stuttgart en Roma borgar fjórar milljónir evra fyrir þjónustu kappans og hefur forkaupsrétt á honum næsta sumar.

Þessi 22 ára gamli miðvörður hefur leikið 66 deildarleiki fyrir Stuttgart og hefur unnið sér sæti í þýska landsliðinu en Rudiger á sex landsleiki fyrir heimsmeistarana.

„Ég er ánægður að fá að klæðast þessari treyju. Ég kem hingað til að vinna titla. Við ætlum okkur að vinna deildina. Ég vil þakka stuðningsmönnum Roma fyrir móttökurnar og ég lofa að ég mun gera mitt besta fyrir félagið\", sagði Rudiger þegar félagaskiptin voru tilkynnt.

Roma hefur leik í Serie A á laugardaginn þegar liðið mætir Emil Hallfreðssyni og félögum í Hellas Verona.

Heimild: Roma

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.