Fotbolti.net
20.08.15 - 17:25
Elvar Geir Magnússon

Fólk pirrað á Twitter því leik ÍBV og KR var frestað

Fólk pirrað á Twitter því leik ÍBV og KR var frestað
Canon

Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson

Eins og fram hefur komið hefur leik ÍBV og KR verið frestað þar sem flugvél með átta leikmönnum KR gat ekki lent í Vestmannaeyjum vegna þoku.

Leikurinn hefur verið settur á morgun föstudagskvöld klukkan 18.
Ljóst er að margir á Twitter eru pirraðir vegna ferðaáætlun KR-inga í leikinn.

Dómarar og starfsfólk Stöðvar 2 Sports eru í Vestmannaeyjum vegna leiksins en 365 ætlaði að sýna leikinn í beinni útsendingu. Ljóst er að 365 verður fyrir umtalsverðu fjárhagstjóni vegna þessarar frestunar.

Hér má sjá brot af umræðunni á Twitter:

ÍBV verður væntanlega dæmdur sigur þar KR-ingar mættu ekki til leiks! Herjólfur búinn að fara 3 ferðir í dag! #fotboltinet #pappakassar

— Berglind Jóhanns (@berglindjohanns) August 20, 2015


Magnað hjá KSÍ. Eitthvað yrði sagt ef ÍBV myndi ekki mæta í auglýstan leik í Vesturbæ útaf þoku í RVK. Herjólfur búinn að sigla í allan dag.

— Páll Magnús Pálsson (@paalli95) August 20, 2015


2.5 milljonir í súinn hjá stöð 2 sport. Vel gert KR. #fotboltinet #pepsi365

— Ólafur Jóhannesson (@olafurmoreno) August 20, 2015


ÍBV hefur ekki frestað leik í rúma tvo áratugi, hvenær ætla Íslendingar að læra ? #vestmannaeyjar #fotboltinet

— Haraldur Pálsson (@haraldurp) August 20, 2015


Hvernig getur það verið að fullt af fólki er mætt til Eyja til að fylgjast með leiknum en KR liðið kemst ekki? #fotboltinet

— Siggi Dan (@siggidan) August 20, 2015


Rosalega hefði ég orðið brjálaður ef ég hefði tekið frí til að fara til eyja. #IBVKR #Frestun #fotboltinet #Pepsideildin

— Hafþór Gerhardt (@hafthorgh) August 20, 2015


Veðurguðirnir sjá um sína. Ég kemst á ÍBV - KR á morgun. Eyjar á morgun. (Staðfest) #fotboltinet #pepsi365 #frestun #friðgeirsvaktin

— Friðgeir Bergsteinss (@fridgeirb85) August 20, 2015


S/O á reiða landsbyggðarmanninn sem er brjálaður yfir því að vonda Reykjavíkurliðið hafi ekki komist í útileik vegna veðurs #fotboltinet

— Hlynur Ólafsson (@HlynurOlafs) August 20, 2015


Það er þetta með veðrið #frestað #pepsi365 #aftursætið pic.twitter.com/9ZrdKwzGOC

— Kristján Gudmundsson (@knottur) August 20, 2015


Það var kvartað undan unprofessional ferð Leiknismanna til eyja fyrr í sumar. Hvað í ósköpunum er þá þetta hjá fokking kr? #djók

— Hlynur Magnússon (@hlynurm) August 20, 2015


Ekki laust fyrir bíl heim. Taka sénsinn á biðlista annars hanga til 21.00. Takk fyrir að fljúga, KR. #$%%$#@%%% Geggjuð Eyjaferð.

— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) August 20, 2015


Þið gátuð auðvitað ekki farið í Herjólf eins og annað fólk #ÍBVKR

— Svava Gretarsdóttir (@SvavaGretars) August 20, 2015


Jacob Schoop er nú bara búin að vera í eyjum síðan á Þjóðhátíð, sá hann allavega ekki í bikarúrslitaleiknum.

— HrafnkellFreyr (@hrafnkellfreyr) August 20, 2015

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.