Fotbolti.net
20.08.15 - 09:07
Magnús Már Einarsson

Nicolas Otamendi til Manchester City (Staðfest)

Nicolas Otamendi til Manchester City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur keypt varnarmanninn Nicolas Otamendi frá Valencia á 32 milljónir punda.

Hinn 27 ára gamli Otamendi sló í gegn hjá Valencia á síðasta tímabili eftir að hafa komið til félagsins frá Porto.

Otamendi var einnig sterklega orðaður við Manchester United í sumar en hann hefur nú skrifað undir fimm ára samning við City.
„Ég er hér til að gera mitt besta til að hjála City að ná eins langt og hægt er. Ég vonast til að vinna nokkra bikara og titla,\" sagði Otamendi.

Otamendi er þriðji leikmaðurinn sem Manchester City fær í sumar á eftir Raheem Sterling og Fabian Delph.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.