20.08.15 - 12:03
Magnús Már Einarsson
Pedro til Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Chelsea hefur keypt kantmanninn Pedro frá Barcelona á 21 milljón punda.
Manchester United hafði einnig sýnt Pedro áhuga en Chelsea náði samkomulagi um kaupverð í vikunni og hefur nú klárað samninga.
„Ég er mjög ánægður með að vera hér. Ég er spenntur að byrja nýtt ævintýri með Chelsea og ég er hér til að halda áfram að vinna titla,\" sagði Pedro.

Pedro kom ungur til Barcelona frá Tenerife en hann hefur fimm sinnum orðið spænskur meistari og þrsivar unnið Meistaradeildina. Þá vann hann HM með spænska landsliðinu árið 2010.
Pedro er 28 ára gamall en hann hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði Barcelona undanfarin ár.