20.09.15 - 21:07
Alexander Freyr Tamimi
Ejub og fimm leikmenn framlengdu hjá Víkingi Ó (Staðfest)

Ejub verður áfram í Ólafsvík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ejub verður áfram í Ólafsvík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ejub Purisevic hefur skrifað undir nýjan samning við Víking Ólafsvík og verður hann þjálfari liðsins næstu tvö árin. Þetta kom fram á <a href=\"http://www.mbl.is/sport/efstadeild/2015/09/20/ejub_framlengdi_til_2017_fimm_leikmenn_framlengdu/\" target=\"_blank\">mbl.is</a> í kvöld, en Ejub hefur þjálfað Víking Ó frá árinu 2003 að frátöldu sumrinu 2009, þar sem hann tók sér frí.
Víkingur Ó vann 1. deildina í sumar og tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni á nýjan leik. Ólsarar settu stigamet í deildinni og jöfnuðu markametið, en þeir fengu 54 stig af 66 mögulegum. Þar af fengu þeir 31 stig af 33 mögulegum á seinni helmingi mótsins.
Ejub kom Víkingi upp í Pepsi-deildina í fyrsta skiptið í sögu félagsins og spilaði liðið í deild þeirra bestu sumarið 2013, en féll hins vegar aftur. Þegar Ejub tók við Víkingi árið 2003 var liðið á botni 3. deildar og kom hann þeim í 1. deildina á tveimur árum.

Auk Ejub framlengdu fimm leikmenn samning sinn við félagið. Þeir eru pólski miðvörðurinn Tomasz Luba, bosníski miðvörðurinn Admir Kubat, spænski markvörðurinn Cristian Martinez, brasilíski miðjumaðurinn William Dominguez og bosníski miðjumaðurinn Kenan Turudija. Þeir framlengdu samning sinn um eitt ár.
Athyglisvert verður að sjá hvort króatíski framherjinn Hrvoje Tokic verður áfram í Ólafsvík, en hann kom til félagsins í sumar og skoraði 12 mörk í átta leikjum. Hafa önnur félög í Pepsi-deildinni sýnt honum áhuga.