20.09.15 - 13:12
Hafliði Breiðfjörð
Tufa þjálfar KA næstu tvö árin (Staðfest)

Túfa þjálfar KA áfram.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Srdjan Tufegdzic hefur verið ráðinn þjálfari KA næstu tvö árin en þetta staðfesti Sævar Pétursson framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar félagsins á Twitter.
Tufa tók við þjálfun liðsins þegar Bjarni Jóhannsson hætti 11. ágúst síðastliðinn en þá samdi hann út tímabilið.
Liðinu hafði gengið illa í sumar og takmarkið að komast upp í Pepsi-deildina var farið að virðast sem vonlaust verkefni.
Í kjölfarið af þjálfaraskiptunum lagaðist gengi liðsins mikið og KA var aðeins þremur stigum frá 2. sæti deildarinnar eftir lokaumferðina í gær.
Á lokahófi félagsins í gær var svo tilkynnt að Tufa muni þjálfa KA næstu tvö árin í það minnsta.
Hann hefur verið hjá KA í tíu ár, kom fyrst hingað sem leikmaður árið 2006 og spilaði 106 leiki í deild og bikar fyrir félagið. Hann varð síðar aðstoðarþjálfari og nú aðalþjálfari.