20.09.15 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Viktor Unnar leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Viktor Unnar hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Unnar hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Unnar Illugason, leikmaður HK, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna aðeins 25 ára gamall. Þetta staðfesti hann í samtali við 433.is.
Viktor Unnar kom inn á sem varamður þegar HK lagði Hauka, 2-0 í síðustu umferð 1. deildar karla í gær.
Viktor Unnar kom inn á sem varamður þegar HK lagði Hauka, 2-0 í síðustu umferð 1. deildar karla í gær.
Viktor lék á ferli sínum með liðum á borð við Breiðabliki, Val, Selfoss, Haukum, Þrótti, Njarðvík, HK og þá fór hann ungur að árum til Reading í Englandi.
Meiðsli byrjuðu að hrjá Viktor þegar hann lék með Reading og hafa alla tíð síðan þá hrjáð hann.
Framherjinn æfði þá lítið sem ekkert fyrir tímabilið í ár og átti í vandræðum stóran hluta tímabils með meiðsli.

Heimild: 443.is