Fotbolti.net
20.10.26 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fékk ekki samninginn sem hún vildi, breytti til og varð Íslandsmeistari

Eftir að sigurinn var í höfn í gær.

Eftir að sigurinn var í höfn í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Breiðablik varð í gær Íslandsmeistari þriðja árið í röð. Elísa Viðarsdóttir spilaði stórt hlutverk með liðinu í sumar eftir að hafa ekki fengið nýjan samning hjá Val á síðasta ári.

Elísa spilaði með Val frá 2016 og var fyrirliði liðsins um árabil. Hún varð fjórum sinnum Íslandsmeistari og tvisvar bikarmeistari.
Elísa fékk samningstilboð frá Val eftir síðasta tímabil en sá samningur var ekki nægilega góður. „Ég hef tekið samtöl við Val, en eins og þær samningaviðræður blasa við mér eru þær einhliða og lítið við því að gera. Ég er farin að skoða aðra kosti, mér líður eins og það séu einhver ár eftir í skrokknum en ég ætla bara að vega og meta hvað kemur upp. Ég er tilbúin að skoða öll spennandi verkefni," sagði Elísa við Fótbolta.net. Ekkert var hægt að hagga við samningnum.

Fanndís Friðriksdóttir, sem fékk ekki nýjan samning hjá Val eftir síðasta tímabil, sagði þetta í Uppbótartímanum í fyrra um Elísu: „Eitthvað er búið að skera fjármagnið. Gerið þá vel við hana sem á það svo sannarlega skilið. Hún hefur skilað engri smá vinnu fyrir félagið."

Elísa ákvað að breyta til í kjölfarið á viðræðunum við Val, fór í Breiðablik og varð Íslandsmeistari enn og aftur. Á meðan féll Valur í Lengjudeildina eftir erfitt sumar.

Elísa ræddi við Morgunblaðið eftir leikinn í gær. Líklegt er að þetta sé hennar síðasta tímabil á ferlinum.

„Ég fann að það var ennþá einhver neisti hjá mér og ég var ekki alveg tilbúin að leggja skóna á hilluna. Það eru því mikil forréttindi að Breiðablik hafi komið inn í myndina í byrjun febrúar og þá var ekki aftur snúið. Frá fyrstu æfingu með Breiðabliki kviknaði neistinn enn meira og hér stöndum við í dag og þessi árangur er staðreynd," sagði Elísa í gær.
Elísa var lykilmaður fyrir Breiðablik í sumar.

Elísa var lykilmaður fyrir Breiðablik í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í gær.

Breiðablik tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Meistarar þriðja árið í röð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.