20.10.26 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þá er Liverpool allt annað lið

Alexander Isak.

Mynd: EPA

Alexander Isak.

Mynd: EPA
Sænski sóknarmaðurinn Alexander Isak hefur farið vel af stað á tímabilinu. Hann skoraði sigurmarkið í síðasta leik gegn Brentford og er núna búinn að skora fimm mörk í sex deildarleikjum.
Það er meira en hann gerði á síðasta tímabili þar sem hann skoraði þrjú mörk í 14 leikjum og var meiddur.

Isak er að sýna núna af hverju Liverpool borgaði 125 milljónir punda fyrir hann á síðasta ári.
„Þetta er leikmaðurinn sem Liverpool var að kaupa," sagði Sölvi Haraldsson í Enski boltinn hlaðvarpinu. „Það eru mörk í honum."
„Þetta er leikmaður sem vinnur leiki fyrir þá. Það er erfiðast að skora mörk í fótbolta."
Það er algjört lykilatriði fyrir Liverpool að hann haldist heill. „Við sáum það í Newcastle og í byrjun þessa tímabils að Isak upp á sitt besta er enn besti leikmaðurinn í deildinni. Með hann heilan og í sínu besta formi er Liverpool allt annað lið," sagði Haraldur Örn Haraldsson en hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér að neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.