Fotbolti.net
20.10.26 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Hvar væri Þróttur þá?"

Þróttur hefur leikið mjög vel að undanförnu.

Þróttur hefur leikið mjög vel að undanförnu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
„Það má alveg ræða það að Þróttur hefur verið eitt besta lið landsins eftir bikarúrslitin," sagði Arnar Páll Garðarsson í Uppbótartímanum í gær.

Eftir frekar hæga byrjun á tímabilinu þá hefur Þróttaraliðið breyst mikið eftir að Katie Cousins kom til landsins. Hún hefur verið gjörsamlega stórkostleg og hjálpað liðinu að komast á næsta stig.
„Þetta er allt annað lið eftir að hún mætti," sagði Snæbjört Pálsdóttir. „Pælið í því ef hún hefði byrjað tímabilið með þeim. Hvar væri Þróttur þá?"

Ef Þróttur nær að halda í Katie Cousins, hversu langt getur þetta lið þá farið?

„Þá geta þær í alvöru gert atlögu að Íslandsmeistaratitlinum," sagði Snæbjört.

„Þakið er nákvæmlega þetta, fyrri hálfleikurinn á móti Breiðabliki og 90 mínúturnar á móti FH. Þetta er búið að vera besta og stöðugasta liðið eftir bikarúrslitin. Katie er bara leikmaður tímabilsins að mínu mati. Ég man ekki eftir að hafa séð leikmann koma svona inn og gjörbreyta öllu. Sóknarlega og varnarlega gerir hún svo fáránlega mikið fyrir þetta lið," sagði Arnar Páll.

Alla umræðuna má hlusta á í spilaranum hér fyrir neðan.
Katie Cousins.

Katie Cousins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Meistarar þriðja árið í röð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.