Dimitar Berbatov, fyrrum leikmaður Tottenham og Manchester United, er spenntur fyrir að sjá Jose Mourinho við stjórnvölinn hjá Tottenham.
Mourinho var staðfestur sem nýr knattspyrnustjóri Tottenham í morgun og er Berbatov mjög ánægður með ráðninguna.
„Pochettino var búinn að vera lengi hja Tottenham og það þurfti að hrista upp í liðinu því það hafði staðnað. Strákarnir eru búnir að vera lélegir að undanförnu, ég bjóst við meiru af þeim í haust," sagði Berbatov.
„Mourinho er frábær stjóri, hann tekur ekki skít frá neinum. Ef þú sýnir honum virðingu þá sýnir hann þér virðingu. Hann á virðingu skilið fyrir allt sem hann hefur unnið.
„Hann mun hafa jákvæð áhrif á klefann, leikmenn munu vilja sanna sig fyrir honum til að vinna sér inn byrjunarliðssæti. Hann mun koma inn með nýjar og ferskar hugmyndir, leikstíl og æfingar."
Athugasemdir