Pablo Punyed, miðjumaður KR, skoraði í 2-0 sigri El Salvador á Dómíníska lýðveldinu í gærkvöldi.
Leikurinn er liður í nýrri Þjóðadeild í Ameríku. Þetta var lokaleikur riðilsins en El Salvador vann sinn riðil í B-deildinni og endaði á undan Montserrat, Dóminíska lýðveldinu og St. Lucia.
Pablo kom inn á sem varamaður á 80. mínútu í gær og skoraði annað mark El Salvador á 87. mínútu við mikinn fögnuð heimamanna.
Hinn 29 ára gamli Pablo hefur spilað á Íslandi frá því árið 2012 en hann á 23 landsleiki að baki með El Salvador.
Hér að neðan má sjá markið.

86' ¡Gol de @LaSelecta_SLV 🇸🇻! ¡Pablo Punyed anotó su primer gol en #CNL ! 🥳#FollowTheDream pic.twitter.com/987i9nXhQg
— Concacaf Nations League (@CNationsLeague) November 20, 2019
Athugasemdir