Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 20. nóvember 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Real Madrid í viðræðum við Inter um Skriniar
Milan Skriniar
Milan Skriniar
Mynd: Getty Images
Spænska félagið Real Madrid er í viðræðum við ítalska félagið Inter um kaup á Milan Skriniar en umboðsmaður hans greinir frá þessu í viðtali við AS.

Skriniar er 24 ára gamall varnarmaður en hann hefur spilað á Ítalíu frá árinu 2016.

Hann spilaði eitt tímabil með Sampdoria áður en Inter keypti hann fyrir 20 milljónir evra og hefur hann reynst Inter afar mikilvægur.

Umboðsmaður Skriniar segir að Inter sé í viðræðum við Real Madrid en hann er metinn á 100 milljónir evra.

„Skriniar er metinn á 100 milljónir evra. Real Madrid er að nálgast samkomulag við Inter því félagið þarf mun meira á honum að halda en Barcelona," sagði Mithah Halis, umboðsmaður Skriniar.
Athugasemdir
banner
banner
banner