Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mið 20. nóvember 2019 15:26
Magnús Már Einarsson
Salah og Robertson líklega ekki með gegn Crystal Palace
Mo Salah fagnar marki.
Mo Salah fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Allt bendir til þess að Mohamed Salah og Andy Robertson verði fjarri góðu gamni þegar Liverpool mætir Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.

Salah og Robertson drógu sig úr verkefnum með landsliðum Egyptalands og Skotlands vegna meiðsla á ökkla.

Salah hefur verið í vandræðum með ökklameiðsli síðan Hamza Choudhury, miðjumaður Leicester, tæklaði hann í byrjun október.

Salah fékk aftur högg á ökklann gegn Manchester City um þarsíðustu helgi og þar tóku meiðslin sig upp að nýju.

Robertson hefur einnig verið að glíma við ökklameiðsli undanfarnar vikur og eins og staðan er núna verða hann og Salah ekki með um helgina.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner