Fotbolti.net
20.11.20 - 05:55
Victor Pálsson

Spánn um helgina - Stórleikur á laugardag

Suarez spilar ekki gegn sínum gömlu félögum.

Suarez spilar ekki gegn sínum gömlu félögum.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska úrvalsdeildin fer aftur af stað í kvöld en einn leikur er á dagskrá þegar Osasuna og Huesca spila í níundu umferð.
Stórleikur helgarinnar er á laugardag þegar Atletico Madrid og Barcelona mætast á heimavelli Atletico, Wanda Metropolitano.

Luis Suarez gekk í raðir Atletico frá Barcelona í sumar en hann er með kórónuveiruna og spilar ekki leikinn.

Real Madrid fær verðugt verkefni fyrr um daginn en liðið spilar við Villarreal sem situr í öðru sæti deildarinnar.

Einnig er leikið á sunnudag sem og mánudag en dagskrána má sjá hér fyrir neðan.

Föstudagur:
20:00 Osasuna - Huesca

Laugardagur:
13:00 Levante - Elche
15:15 Villarreal - Real Madrid
17:30 Sevilla - Celta Vigo
20:00 Atletico Madrid - Barcelona

Sunnudagur:
13:00 Eibar - Getafe
15:15 Cadiz - Real Sociedad
17:30 Granada - Valladolid
20:00 Alaves - Valencia

Mánudagur:
20:00 Athletic Bilbao - Betis
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.