Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 20. nóvember 2020 06:00
Victor Pálsson
Vill sjá Soyuncu frekar en Koulibaly
Mynd: Getty Images
Jimmy Floyd Hasselbaink, fyrrum leikmaður Chelsea, væri til í að sjá félagið reyna við Caglar Soyuncu frekar en Kalidou Koulibaly á næsta ári.

Koulibaly er einn eftirsóttasti bitinn í Evrópu en hann er varnarmaður Napoli og er á óskalista margra liða.

Soyuncu myndi reynast mun ódýrari kostur en Tyrkinn hefur gert mjög vel á Englandi síðan hann kom frá Augsburg.

„Það eru margir að tala um Kalidou Koulibaly en hann er 29 ára gamall og væri mjög dýr," sagði Hasselbaink.

„Ég er í raun mjög hrifinn af varnarmanni Leicester, Caglar Soyuncu og tel að hann gæti staðið sig með prýði hjá Chelsea."

„Einnig varnarmaður Inter, Milan Skriniar, það tala margir um hann og hann er annar mjög góður leikmaður."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner