Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 20. nóvember 2021 16:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þýskaland: Dortmund færist nær Bayern
Mynd: Getty Images
Fimm leikjum er lokið í efstu deildinni í Þýskalandi. Bayern Munchen tapaði í gær og því gat Dortmund minnkað forskot þeirra niður í eitt stig með sigri gegn Stuttgart.

Staðan var markalaus í hálfleik en Donyell Malen kom Dortmund yfir í upphafi síðari hálfleiks. Roberto Massimo jafnaði stuttu síðar.

Marco Reus tryggði Dortmund stigin þrjú þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Leverkusen komst í 4. sætið með sigri gegn Bochum á meðan Wolfsburg gerði jafntefli gegn Armenia Bielefeld og Leipzig tapaði gegn Hoffenheim. Þá vann Gladbach góðan sigur á Greuther Furth.

Borussia D. 2 - 1 Stuttgart
1-0 Donyell Malen ('56 )
1-1 Roberto Massimo ('63 )
2-1 Marco Reus ('85 )

Bayer 1 - 0 Bochum
1-0 Amine Adli ('3 )

Borussia M. 4 - 0 Greuther Furth
1-0 Jonas Hofmann ('9 )
2-0 Florian Neuhaus ('28 )
3-0 Alassane Plea ('43 )
4-0 Jonas Hofmann ('57 )

Hoffenheim 2 - 0 RB Leipzig
1-0 Diadie Samassekou ('12 )
2-0 Munas Dabbur ('68 )

Arminia Bielefeld 2 - 2 Wolfsburg
1-0 Masaya Okugawa ('11 )
2-0 Fabian Klos ('54 , víti)
2-1 Wout Weghorst ('62 )
2-2 Lukas Nmecha ('63 )
Athugasemdir
banner
banner
banner