Fotbolti.net
20.11.26 - 15:41
Elvar Geir Magnússon

Berrada tjáir sig um gagnrýnina, Carrick og JJ Gabriel

Berrada með Jason Wilcox í stúkunni.

Berrada með Jason Wilcox í stúkunni.

Canon

Mynd: EPA

„Sú staðreynd að við höfum haft þrjá fasta stjóra á þremur tímabilum sýnir að við höfum ekki náð þeim stöðugleika sem við vildum... við verðum að halda áfram að bæta okkur og gera betur. Við erum alltaf að reyna að læra, bæta okkur og skoða hvað hefur mistekist," segir Omar Berrada, framkvæmdastjóri Manchester United.

Berrada ræddi ýmsa hluti í einkaviðtali við Sky Sports og var meðal annars spurður út í alla gagnrýnina sem félagið hefur fengið. Hann segir að menn verði að sætta sig við gagnrýnina þó hluti af henni sé ósanngjörn.
Tíu stór verkefni sem bíða Pochettino hjá Man Utd
TENGT EFNI

Tíu stór verkefni sem bíða Pochettino hjá Man Utd

„Við verðum að sætta okkur við gagnrýnina , við vonum að nú með komu Mauricio Pochettino fáum við þann stöðugleika sem við öll þurfum. Við tökum gagnrýninni; stór hluti af henni er sanngjörn. Það er okkar ábyrgð að reka félagið."

„Sumt af þessu er sanngjarnt en annað fer yfir strikið. Við lifum í þessum heimi samfélagsmiðla þar sem fólk vill birta neikvæðar sögur um félagið vegna þess að það gefur meiri lestur og eykur lætin í kringum félagið."

Hann segir að það hafi verið mjög erfið ákvörðun að láta Michael Carrick fara.

„Það þykir öllum hjá félaginum vænt um Michael. Liðið stóð sig mjög vel undir hans stjórn þegar hann tók við á síðasta tímabili. Við vorum að spila mjög góðan fótbolta, vinna mikilvæga leiki. Við komumst í Meistaradeildina, enduðum í þriðja sæti og okkur fannst á þeim tímapunkti að hann hefði áunnið sér rétt til að halda áfram."

Berrada var spurður um brottför hins 15 ára gamla JJ Gabriel sem er að fara til Real Madrid.

„Við gerðum allt til að halda JJ. En við viljum aðeins halda einstalingum hjá félaginu sem líta á það sem forréttindi að spila fyrir Manchester United;" sagði Berrada.
Berrada tjáir sig um gagnrýnina, Carrick og JJ Gabriel
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.