Fotbolti.net
20.11.26 - 15:17
Elvar Geir Magnússon

Pochettino: Hef ekki getað sofið

Mauricio Pochettino.

Mauricio Pochettino.

Canon

Mynd: Manchester United

Það voru engar flugeldasýningar á fyrsta fréttamannafundi Mauricio Pochettino sem stjóri Manchester United. United heimsækir Anfield á sunnudaginn.

„Það er erfitt að finna annað félag á stærð við Manchester United. Við þurfum að að ná árangri sem þetta sögufræga félag þarfnast, Manchester United þarf að vera á öðrum stað en það er núna," sagði Pochettino.

Pochettino flaug til Englands beint frá Bandaríkjunum í vikunni, þar sem hann stýrði bandaríska landsliðinu til sigurs gegn Haítí.
Pochettino kallar eftir hugrekki frá Man Utd
TENGT EFNI

Pochettino kallar eftir hugrekki frá Man Utd

„Fyrsta markmið mitt er að sofa, ég hef ekki getað sofið. Bara þrjár eða fjórar klukkustundir á sólarhring. Markmiðið er að kynnast öllu fólkinu í félaginu og leikmönnunum. Við þurfum að reyna að fá sem mest út úr þeim því við höfum hæfileikaríkan hóp. Það er aðaláherslan okkar núna."

Bruno áfram fyrirliði
Á fundinum staðfesti Pochettino að Bruno Fernandes yrði áfram fyrirliði undir hans stjórn.

„Bruno er fyrirliði okkar og mjög mikilvægur leikmaður. Í gær var ég þrjár klukkustundir að spjalla á skrifstofunni minni við leikmennina. Við þurfum að hlusta á það sem leikmennirnir hafa að segja. Ekki bara á vellinum, heldur utan vallar, hvað er í gangi," segir Pochettino.


Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.