Fotbolti.net
19.11.26 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson

City og Forest kusu gegn tillögu úrvalsdeildarinnar

City og Forest kusu gegn tillögu úrvalsdeildarinnar
Canon

Mynd: EPA

Aðildarfélög ensku úrvalsdeildarinnar samþykktu tillögu frá stjórn deildarinnar á sérstökum fundi fyrr í dag.
Úrvalsdeildin biður félögin um fjárhagslegan stuðning
TENGT EFNI

Úrvalsdeildin biður félögin um fjárhagslegan stuðning

Tillagan snýr að verkferlum ef einhver af fimm stjórnendum úrvalsdeildarinnar fær persónulega kæru á sig frá styrktaraðilum Manchester City. Úrvalsdeildarfélögin eru tilbúin að standa straum af öllum lögfræðikostnaði sem gæti komið upp ef einstaklingarnir verða kærðir.

Etihad og Etisalat eru meðal fyrirtækja sem hafa hótað að lögsækja ensku úrvalsdeildina og gætu þau ákveðið að lögsækja einnig einstaklingana sem stjórna deildinni.

Átján úrvalsdeildarfélög kusu með tillögunni en Manchester City og Nottingham Forest kusu gegn henni. Þetta þýðir að Man City mun taka þátt í að greiða lögfræðikostnað ef styrktaraðilar félagsins ákveða að lögsækja stjórnendur úrvalsdeildarinnar.

Heimildarmenn BBC segja að atkvæði Forest þýði ekki að félagið standi með Man City. Stjórnendur félagsins eru sagðir vera ósáttir með hversu lítill tími var gefinn til að taka ákvörðun og takmarkað magn upplýsinga.
City og Forest kusu gegn tillögu úrvalsdeildarinnar
Canon

Mynd: Chateau

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.