Fotbolti.net
21.01.15 - 16:22
Magnús Már Einarsson

Eggert Gunnþór til Vestsjælland (Staðfest)

Eggert Gunnþór Jónsson.

Eggert Gunnþór Jónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eggert Gunnþór Jónsson hefur gengið til liðs við FC Vestsjælland í Danmörku.

Eggert hefur gert samning við Vestsjælland sem gildir út þetta tímabil.

Hinn 26 ára gamli Eggert hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Belenenses í Portúgal síðastliðið sumar.

Síðan þá hefur Eggert verið að jafna sig af meiðslum en hann fór í aðgerð vegna þrálátra nárameiðsla í október.
Markvörðurinn Frederik Schram er á mála hjá Vestjælland en hann hefur leikið með U21 árs landsliði Íslands.

Vestfjælland er í ellefta og næstneðsta sæti í dönsku úrvalsdeildinni, fjórum stigum frá öruggu sæti. Næsti leikur liðsins er gegn FC Kaupmannahöfn 22. febrúar þegar danska deildin hefst aftur eftir vetrarfrí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.