21.01.15 - 10:28
Magnús Már Einarsson
Ingþór Björgvinsson í Selfoss (Staðfest)

Ingþór Björgvinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Ingþór Björgvinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla
Selfoss hefur fengið miðjumanninn Ingþór Björgvinsson í sínar raðir frá Hamri í Hveragerði.
Hinn 21 árs gamli Ingþór hefur spilað með Hamri allan sinn feril en hann var fyrirliði liðsins í þriðju deildinni síðastliðið sumar.

Ingþór hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað með meistaraflokki síðan árið 2008 en hann hefur skorað 17 mörk í 106 deildar og bikarleikjum.
Króatíski miðju og varnarmaðurinn Luka Jagacic verður áfram með Selfyssingum í sumar sem og framherjinn Elton Renato Livramento Barros frá Grænhöfðaeyjum.
Hins vegar er líklegt að miðjumaðurinn Hamza Zakari hverfi á braut.