21.01.15 - 18:19
Ívan Guðjón Baldursson
Luis Muriel til Sampdoria (Staðfest)

Luis Muriel skoraði 7 í 29 deildarleikjum með Lecce.

Mynd: Getty Images

Kólumbíski sóknarmaðurinn Luis Muriel er kominn til Sampdoria eftir fjögur ár hjá Udinese.
Muriel er þekktur fyrir gríðarlegan hraða en hann hefur skorað 15 mörk í 57 deildarleikjum með Udinese og þá gerði hann 7 mörk í 29 leikjum þegar hann var lánaður til Lecce.

Sampdoria er að styrkja sóknarlínuna sína eftir að hafa misst Manolo Gabbiadini til Napoli og er félagið sterklega orðað við kamerúnska sóknarmanninn Samuel Eto\'o.
,,Frá og með deginum í dag er ég leikmaður Sampdoria,\" skrifaði Muriel á Instagram.
,,Ég vil þakka Udinese og öllu fólkinu sem hjálpaði mér í Udine. Þakkir frá hjartanu til þeirra stuðningsmanna sem höfðu trú á mér til enda.\"
Muriel var eftirsóttur af Roma og Juventus en valdi byrjunarliðssæti hjá Samp, sem er í meistaradeildarbaráttu.