Fotbolti.net
21.01.15 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Magnús Otti í HK (Staðfest)

Axel Kári framlengdi við HK.

Axel Kári framlengdi við HK.

Canon

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Magnús Otti Benediktsson er genginn til liðs við HK Frá Fylki en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Magnús er tvítugur sóknarmaður sem lék með HK í yngri flokkunum og upp í 2. flokk en bjó einnig í Japan og spilaði þar.

Hann fór í KR í árslok 2011 og lék þar í 2. flokki og einnig nokkra mótsleiki með meistaraflokki. Magnús gekk til liðs við Fylki síðasta vor og lék þá einn leik með Árbæjarliðinu í úrvalsdeildinni og einn í bikarkeppninni þar sem hann skoraði eitt mark.

Magnús lék sinn fyrsta mótsleik með meistaraflokki HK um síðustu helgi og skoraði þá eitt mark og lagði annað upp í 4-1 sigrinum á Selfyssingum í Fótbolta.net mótinu.

Þá hefur vinstri bakvörðurinn Axel Kári Vignisson skrifað undir nýjan tveggja ára samning við HK en hann spilaði alla leiki liðsins síðastliðið sumar eftir að hafa komið frá ÍR.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.