Fotbolti.net
21.01.15 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Marteinn Örn í Fram (Staðfest)

Marteinn Örn Halldórsson.

Marteinn Örn Halldórsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Marteinn Örn Halldórsson hefur gengið til liðs við Fram en þetta staðfesti hann í Snapchat skilaboðum sem hann sendi Fótbolta.net í dag.
Marteinn er 23 ára gamall en hann hefur varið mark Reynis í Sandgerði undanfarin tvö ár.

Marteinn er uppalinn hjá Fjölni en hann lék sex leiki með liðinu í fyrstu deildinni sumarið 2012.

Ögmundur Kristinsson, Denis Cardaklija og Hörður Fannar Björgvinsson vörðu mark Fram síðastliðið sumar en þeir eru allir horfnir á braut.

Sigmar Ingi Sigurðarson kom til Fram frá Haukum á dögunum og nú hefur Marteinn bæst við hópinn. Markvörðurinn Bjarki Pétursson kom einnig til Fram frá Vængjum Júpíters á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.